H-JÓL
Loftið hérna í Seattle skiptir ekki oft um dvalarstað, en þrátt fyrir það leika hlýjir vindar um hárfagrann meistarann þennan daginn. Ástæðuna má rekja til þess að meistarinn er kominn í amerískt jólaskap. En eftir að hafa séð stúlkukind úr og í jólasveinabúning í gærkveldi, rauk meistarinn út og kom heim með nýtt hjól. Jamm, það er nú bara þannig.
Nú sleppur maður við hárblásturinn á morgnana, og lætur móðir náttúru, ásamt þeim títtnefnda manni sem fann upp blessað hjólið, um kraftaverkin.
Sannarlega tími til að líta um öxl, og skilja aumingjana eftir í rykinu.
2 Comments:
.. on the road agin ...
Mig langar að vita meira um þessa stelpu sem var í jólasveinabúning og fór síðan úr honum?!!!!
Post a Comment
<< Home