Pilates
Jæja þá er maður búinn í fyrsta pilates tímanum. Helvíti hressandi að vakna eldsnemma á mánudagsmorgni og drulla sér út í svona vitleysu. Ég var með smá efasemdir um réttmæti þess að fara á pilates æfingu. Ekki leið mér nú betur með þetta þegar ég sá svipinn á gaurnum í afgreiðslunni þegar gamall og stirður geira-refur spurði í hvaða sal pilatesæfingin væri. Það var mjög augljóst að þessi týpíski ameríski jockey gaur átti ekki von á því að neinir aðrir en kerlingar mættu í þetta, ég skil hann mjög vel.
Ég náði samt að smella einni mynd á æfingunni.
2 Comments:
Pæliði í auglýsingamennskunni, þeir hittu allavega vel á með að bjóða ykkur þessa þjónustu, pílatesdrengirnir hahahahahha
eh vona að það verði á hinn vegin í mínum pilates tíma á morgun, þriðjudags morgnar hér á ferð sko!
Post a Comment
<< Home