.comment-link {margin-left:.6em;}

Carpachio og Bateman

Mind - Breath - Body

Monday, October 17, 2005

Hárnæring fyrir gamlan ref

Fyrir tveim dögum kom Geiri heim með fullan poka af hársnyrtivörum. Hann hafði farið í sömu búð og seldi honum andlitskrem (fyrir karlmenn !?) því þeir selja svo góðar náttúruvörur. Hann sagði mér stoltur að afgreiðslustúlkan hefði látið hann setjast og þreifað á hári hans vel og lengi. Hún hafði víst uppi fögur orð um hárprýði hans og lét hann síðan hafa sjampó og hárnæringu sem voru akkúrat það besta fyrir hans hárgerð.
Geiri var að vonum hæstánægður með þetta allt saman. Ég vona að það hafi ekki skemmt gleðina fyrir honum þegar ég benti honum á að bæði á sjampóinu og hárnæringunni stóð skýrum stöfum: Brightens grey hair.

Er eitthvað farið að grána hjá þessum gamla ref ?

2 Comments:

At 12:32 PM, Anonymous Anonymous said...

LOL :D

 
At 9:22 PM, Anonymous Anonymous said...

Hihihihihi

Kv. Hrönn

 

Post a Comment

<< Home