.comment-link {margin-left:.6em;}

Carpachio og Bateman

Mind - Breath - Body

Monday, May 08, 2006

Hugarleikfimi í boði Sigurrós og amina

Tónleikar um daginn með Sigurrós í Benaroya Hall....
Að vanda var fjölmennt og Íslendingastrollan lét sig ekki vanta.
Þessir tónleikar voru ekki síðri en þeir sem við
sáum fyrir áramót í Paramount Theater, en að þessu sinni var salurinn
aðeins minni, en einnig mun betur gerður fyrir hljómleika
af þessu tagi.
Tveir auka plúsar voru við þessa tónleika, en sá fyrri var þess eðlis að hann óli, náði með útgeisluninni einni saman, að fá gefins tvo miða sem voru á besta stað í höllinni. Þessi smái en knái sambýlismaður hefur hjarta fílsins, og eftir hálffulla tónleika, þá mætti hann aftast á aumingjabekkina þar sem við sátum í jógastellingum, með Charlotte á bakinu, og skipti við mig og vin okkar Dania. Þaðan er þetta videó einmitt tekið........ Ef glögg er fylgst með, þá kemur ansi skemmtileg þögn í laginu þegar rúmar fimm mín eru búnar.....



Hinn plúsinn, var svona forréttaplús, en þær mýslur í hljómsveitinni amina fengu að blása sýnu blíðasta í um hálftíma, og kvittast hér með að þær stöllur stóðu sig hreint ágætlega.... Hér er lokalagið þeira, en það heitir afmælis.



Þangað til næst, farið vel með ykkar nánustu og breiðið út smá ást og hlýju.....

Sunday, May 07, 2006

Rísandi sól

Nordheimar upplifa tíð hækkandi sólar í Seattle, og óska tryggum lesendum gleðilegrar komandi tíðar. Í tilefninu, skellti ég mér ásamt fríðu föruneyti, eftir einn tímann, niður á kajakleigu háskólans, sem er aðeins í 500 metra fjarlægð frá verkfræðibyggingunni.


Séð yfir Lake Washington

Wednesday, May 03, 2006

Verkefni

Í síðustu viku var ég að vinna verkefni með tveim stelpum í bekknum. Við þurftum m.a. að kanna viðhorf fólks til ákveðinna hluta. Þar sem mér finnst fólk sem stoppar mann úti á götu til að spyrja mann spurninga vera leiðinlegt, þá stakk ég upp á því að við myndum gefa fólki drykki svo það myndi frekar nenna að tala við okkur. Við fengum síðan gefna drykki hjá heildsala til að nota í þetta. Þegar við fórum að ná í drykkina sá ég að þeir voru með búninga sem þeir létu kynningardömurnar klæðast. Ég stakk upp á því svona í gríni að stelpurnar myndu vera í búningunum. Mér til mikillar undrunar voru þær til í það og skelltu sér bara í gallann. Ég er ekki frá því að þetta hafi haft jákvæð áhrif á könnunina enda hressar stelpur þar á ferð.
Rose, Ég og Marianne í verkefnavinnu í skólanum.