.comment-link {margin-left:.6em;}

Carpachio og Bateman

Mind - Breath - Body

Saturday, March 17, 2007

The end of an era

Jæja þá er víst komið að því. Leiðir eru að skilja hjá okkur Geira. Hann heldur nú ótrauður heim til Móðurlandsins þar sem hann hyggst innleiða nýja siði í byggingariðnaðinum....

Það má með sanni segja að það verði viðbrigði að missa Geira héðan úr Seattle. Nú erum við búnir að ganga saman í gegnum súrt og sætt í meira en eitt og hálft ár. Við erum búnir að búa saman, vera saman í bekk og gera nánast alla hluti saman.
Það hefur líka verið ótrúlegt að fylgjast með drengnum hreinlega springa út. Aldrei hefði mig órað fyrir því að þessi óharðnaði unglingur sem lagði af stað með mér til Seattle fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan ætti eftir að þroskast svona mikið. Auðvitað hefur hann hlotið frábæra leiðsögn frá mér, en það verður samt ekki horft fram hjá því að þessar ótrúlegu framfarir eru einnig að einhverju leiti honum sjálfum að þakka. Auðvitað hefur hann misstigið sig á leiðinni, eins og þegar hann lék í Dressman auglýsingunni:

En þegar slíkt gerist þá skiptir máli að dæma ekki heldur benda vingjarnlega á mistökin og ræða síðan á jafnréttisgrundvelli hvers vegna þetta var rangt.
Eða þegar hann festi næstum hausinn í rörinu...

En síðan fór þetta nú allt að ganga betur og maður hætti að hafa áhyggjur og sá að strákurinn var alveg að spjara sig upp á eigin spýtur.
Dagurinn þegar hann fór síðan á fyrsta stefnumótið, með stelpu sem hann kynntist á Internetinu, verður dagur sem ég mun seint gleyma, eftirvæntingin og stoltið sem hreinlega skein af stráknum var engu líkt.

Þetta gekk allt saman vel og hafa stefnumótin verið fjölmörg eftir þetta.

Það má jafnvel ganga svo langt að segja að Geiri sé orðinn einn eftirsóttasti piparsveinninn hér austan I-5 hraðbrautarinnar. Hann skilur eftir sig kramin stúlknahjörtu hvar sem hann fer og það hefur verið hreinlega með ólíkindum að fylgjast með örvæntingu og depurð aðdáendahópsins núna eftir að hann tilkynnti brottför frá Seattle. Annað eins hefur ekki sést síðan drengjakvartetinn BoyZone tilkynnti að hann væri að hætta.
Það hefur því ekki reynst auðvelt að fá tíma hjá Geira þessa síðustu daga, slíkan munað þarf að bóka með a.m.k. nokkurra daga fyrirvara.
Það er því ljóst að það verður stórt skarð hér í Seattle þegar Geiri fer og af honum mikill missir.
Það er samt alltaf gott að vita að þegar maður horfir upp í himininn og sér stjörnurnar þá eru það sömu stjörnur og skína á Geira í Glaðheimunum.

6 Comments:

At 6:25 AM, Anonymous Anonymous said...

Geiri er flottur !

 
At 4:44 AM, Blogger Ibbi said...

Jæja, svo hann er lagður í hann. Ég hlýt að finna hann hérna einhversstaðar í borginni.
Hvað er að sjá á honum handleggina á síðustu myndinni, er þetta fótósjoppað? Það hlaut svosem að koma að því að eitthvað settist utan á hann. :)

 
At 11:23 AM, Blogger Hrabba said...

Óli ég trúi því að þú berir söknuðinn vel og eigir eftir að spjara þig með ágætum Geira laus.

Ég treysti nottla á að allir komi við í London á leið heim til Íslands ... en svona er þetta bara stundum ... Geiri því komstu ekki við hjá mér!!!

Hehe annars bara velkominn heim og hafðu það obbo gott í mömmumat og alles ;)

H

 
At 4:29 AM, Anonymous Anonymous said...

ég er nú bara að bíða eftir BLOGGI!!

H

 
At 1:48 PM, Blogger Devin Daniels said...

[url=http://internationaloddities.com]International Oddities[/url] is the Original Legal Bud Smoke Shop - for 30 years!
Herbal Cigarettes We deliver "high grade", low priced Legal Bud. IO products are incredibly strong, smoke even better than they look ... and look absolutely insane.

International Oddities is the ONLY company on the net who consistently ships you High Grade [url=http://www.iobud.com]legal buds[/url], while others sell shake soaked in green and red food coloring across a group of "legal bud and herbal smoke" websites. They're not even "Legal Bud" though their name implies it!

[url=http://internationaloddities.com]CLICK HERE TO PURCHASE[/url] Or Call us at 1-800-730-i get bud

[img]http://www.internationaloddities.com/images/home/girl-in-buds.jpg[/img]
[url=http://www.herbal-reviews.info/] herbal reviews [/url]
[url=http://www.boxofbuds.com/] boxof buds [/url]
[url=http://source-coders.com/] source coders [/url]
[url=http://www.canofbud.com] canof bud [/url]

 
At 3:34 AM, Anonymous Anonymous said...

happen to be inside the drug scene for fifteen months currently. I was from the really hardcore substances beginning from crystal meth, ten filters of marijuana, hash, cocaine, virtually whatsoever enthralling. I have truly been using individuals substances! Even so as anybody may possibly perhaps recognize, genuine time errands or wellbeing problems started out to occur up and, then, as greatly as I liked those, I have got to have reduced and in time get rid of such out of my territory! It have been less complicated than any one may picture but only should you be acquainted with all the authorized, non- vicious equivalent of people depending city prescription drugs.

I ought to happen to be exactly there, residing and clear-headed to accomplish specifically that which I got to achieve to carry on, specifically now when we find ourselves in a financial decline, surviving in these kinds of financial emergency circumstance, I wish to accrue every one of the complete means! IHence from illegal drugs, my transition to [url=http://buylegalbudscomreviews.info]legal bud [/url]. I am not any longer a narcotics consumer now and that is a achievement I prefer to brag of. It's not been virtually uncomplicated, nonetheless I had to flatten my awareness, provided that my kids are hoping for me to take care of them!

 

Post a Comment

<< Home