.comment-link {margin-left:.6em;}

Carpachio og Bateman

Mind - Breath - Body

Monday, March 27, 2006

Making history

Einn sólríkan Seattledag ákváðum við sambýlismaður minn að leita uppi þekktan listamann til að fanga á pappír listaverkið sem andlit okkar eru. Eftir mikla leit fannst á fyrstu breiðgötu umræddur listamaður. Ekki reyndist hann ódýr, en sambýlismaður minn náði með miklum sannfæringarkrafti að telja mér trú um að ekki yrði aurunum á annan hátt betur varið. Það má því segja að á vissan hátt hafi einfeldningslegt nöldur sambýlismanns míns, verið upphafið af þessum sögulega atburði. Staðreynd sem á eflaust eftir að rata í sögubækur framtíðarinnar. Listamaðurinn ákvað að byrja á léttri upphitun áður en ráðist yrði í meistaraverkið. Hann bað því sambýlismann minn vinsamlegast að stilla sér upp, sem hann og gerði. Eftir að upphituninni var lokið og líta mátti smetti sambýlismanns míns á pappírnum, var sem allur efi hyrfi úr huga mínum, sem dögg fyrir sólu. Ég fann á mér að merkur atburður í listasögunni var í þann mund að eiga sér stað. Ég gerði mitt besta til að hlýða ítarlegum fyrirmælum listamannsins sem gaf hárnákvæmar skipanir um það hvernig höfði skyldi hallað og hvert augum ætti að beina. Loksins eftir langa og erfiða lotu tókst listamanninum að ljúka ætlunarverki sínu og stoltið leyndi sér ekki. Augu hans skutust ótt og títt milli andlits míns og listaverksins og svitin draup af honum, sem mæjónes úr nonnabáti. Allt látbragð hans benti til þess að ekki hefði annað eins afrek verið unnið af nokkrum manni. Hann vildi þó ekki láta staðar numið og bauð okkur að teikna, gegn aukagreiðslu, Space Needle líka á myndina. Það var þó sameiginleg ákvörðun mín og sambýlismanns míns að slík mannana verk ættu ekkert erindi á mynd sem þessa. Einnig hafði það áhrif á ákvörðun okkar, að listamaðurinn var augljóslega þrekaður mjög.

3 Comments:

At 2:18 AM, Blogger carpachio said...

það má svo við bæta, að tregir viðskiptavinir síðunnar geta óttalaust reynt að geta upp á því hvor er hvað á þessari mynd.

 
At 8:21 AM, Anonymous Anonymous said...

Þetta er skemmtileg getraun, hvor er hvað. Eruð þetta örugglega þið?

 
At 12:59 PM, Anonymous Anonymous said...

það er nottla alveg augljóst hver er óli en ég veit ekki hvaða vin hann tók með sér í þetta dæmi!!

 

Post a Comment

<< Home