I - 5 beina leið til Sacramento
Já, Norheimar nötra í veðurblíðunni. Það bókstaflega brakar allt í hitanum, og fólk hreinlega farið að beita hulk hogan taktík við að rífa af sér vetrarklæðin. Með mis- góðum, og vinsælum árangri samt. En oft má gott bæta, og síðasta helgi var notuð í að skoða grasið hinum megin. Viti menn, grasið er grænna í Kaliforniu.
Menn, ekki apar stökkvandi á eftir appelsínum, eitthvað sem íbúar Seattle eiga ekki að venjast
Ástæða fyrir ferðinni var úrslitakeppnin í körfuknattleik, þar sem áttust við heimamenn í Sacramento Kings, og San Antonio Spurs. Eftir mikinn og lappastóran darraðardans, fóru mínir menn í Sacramento... (já ég sagði mínir menn, í aubnablikinu) með sigur af hólmi, sem hefur nú verið gefið nafnið hólmsoddi, og það reyndar með minnsta mögulega mun.
Atvikið festist á filmu......
Gaman að geta þess að rétt í þessu þá voru kings að vinna fjórða leikinn, og staða því orðin 2-2....
Þessi ferð alveg einstaklega vel heppnuð, þar sem við lentum í mikilli sól, og miklum hita.... en það eru ein af fáum skilyrðum sem virðast virka einstaklega vel á okkur Íslendinga. Á heimleiðinni var síðan stoppað við ströndina þar sem hvít og úr sér gengin húðin gekk í endurnýjun lífdaga....
Myndir eru komnar í hús, og má líta dýrðina augum hér til hliðar í myndir 008.....
Annars bið ég ykkur vel að lifa, og fara að engu óðslega......
Þangað til næst.....
6 Comments:
Gott að þið eruð farnir að blogga aftur. Frábærar myndir, já grasið er greinilega stundum grænna hinu megin.
bara til að upplýsa þá í myrkrinu, þá er téður garred hávaxinn, og leikur í "allir elska raymond". Þetta verður seint tekið í sátt.....
carpachio....
Hulda er skotin í þér
haha.... þú ert falleg ung stelpa hulda mín..... Það er sannarlega gaman að vera orðinn 15 aftur...
vááá þvílíkt myndbrot úr boltaleiknum. Þvílík karfa, hvaða asni tapaði boltanum hjá SA Spurs, það koma bara upp einhver gömul nöfn í hugann Vinnie del Negro what, það getur ekki verið..???
uss ibbi.. þetta er skandale... þetta er ginobili....sjálfur...
carpachio
Post a Comment
<< Home