I - 5 beina leið til Sacramento
Já, Norheimar nötra í veðurblíðunni. Það bókstaflega brakar allt í hitanum, og fólk hreinlega farið að beita hulk hogan taktík við að rífa af sér vetrarklæðin. Með mis- góðum, og vinsælum árangri samt. En oft má gott bæta, og síðasta helgi var notuð í að skoða grasið hinum megin. Viti menn, grasið er grænna í Kaliforniu.
Menn, ekki apar stökkvandi á eftir appelsínum, eitthvað sem íbúar Seattle eiga ekki að venjast
Ástæða fyrir ferðinni var úrslitakeppnin í körfuknattleik, þar sem áttust við heimamenn í Sacramento Kings, og San Antonio Spurs. Eftir mikinn og lappastóran darraðardans, fóru mínir menn í Sacramento... (já ég sagði mínir menn, í aubnablikinu) með sigur af hólmi, sem hefur nú verið gefið nafnið hólmsoddi, og það reyndar með minnsta mögulega mun.
Atvikið festist á filmu......
Gaman að geta þess að rétt í þessu þá voru kings að vinna fjórða leikinn, og staða því orðin 2-2....
Þessi ferð alveg einstaklega vel heppnuð, þar sem við lentum í mikilli sól, og miklum hita.... en það eru ein af fáum skilyrðum sem virðast virka einstaklega vel á okkur Íslendinga. Á heimleiðinni var síðan stoppað við ströndina þar sem hvít og úr sér gengin húðin gekk í endurnýjun lífdaga....
Myndir eru komnar í hús, og má líta dýrðina augum hér til hliðar í myndir 008.....
Annars bið ég ykkur vel að lifa, og fara að engu óðslega......
Þangað til næst.....